Smáhundar velkomnir á sunnudögum
Við bjóðum smáhunda velkomna í heimsókn á sunnudögum.
Hvuttar eru velkomnir með eigendum sínum á sunnudögum, hvort sem er til að koma með á kaffihús, kíkja í verslanir eða njóta þess að sitja úti í Kringlugarðinum þegar veður leyfir.
Leyfið nær ekki til matvöruverslana og snyrtistofa. Eigandi ber alla ábyrgð á hundinum sem verður að vera í bandi og er skylt að þrífa upp eftir hann ef "slys" verða. Halda þarf á hundi í rúllustiga eða nota lyftu milli hæða. Eigendur taki tillit til annarra Kringlugesta í hvívetna.