Afgreiðslutími

OPIÐ Í DAG: 10:00 - 18:30

OPNUNARTÍMI
mánudagur 10:00 - 18:30
þriðjudagur 10:00 - 18:30
miðvikudagur 10:00 - 18:30
Skírdagur 12:00 - 17:00
Föstudagurinn langi LOKAÐ
laugardagur 11:00 - 18:00
Páskadagur LOKAÐ

NETVERSLUN OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Language switcher
LogoLogo
Mitt uppáhalds

Óskalisti

Innskráning

Skráðu þig inn til að velja þitt uppáhalds.

Skráðu þig inn með Facebook
Cart

Karfan þín er tóm

Karfa

Það er ekkert í körfunni!

Gjafakort Kringlunnar

Gjafakort í spilastokki

Ertu að leita að hugmynd að gjöf sem hentar öllum? Á starfsmaður hjá fyrirtæki þínu stórafmæli? Er vinahópurinn að safna saman í gjöf, eða ertu hreinlega í vandræðum með hvað þú átt að gefa? Ef svo er þá er gjafakort Kringlunnar tilvalinn kostur og eins má benda á að starfsmenn greiða ekki skatt af gjafakortum Kringlunnar líkt og gildir fyrir bankakort. Gjafakort Kringlunnar gildir í öllum verslunum og hjá þjónustuaðilum í Kringlunni að Vínbúðinni undanskildri.

Þú getur verið viss um að viðtakandinn verði ánægður með gjöfina.

Kringlan býður nú upp á rafræn gjafakort sem hægt er að senda beint til viðtakanda og gerir mögulegt að vera með gjafakortið í veskinu í símanum sínum og því alltaf með kortið á sér. Rafræn gjafakort er umhverfisvæn lausn þar sem ekki þarf plastkort og umbúðir líkt og áður.

Fyrir þá sem vilja fá gjafakort til að afhenda, fást þau í Þjónustuveri Kringlunnar á 2. hæð við hlið Nova sem og hér á vefnum. Þau kort er einnig hægt að setja í símaveski. Hægt er að kaupa kort fyrir hvaða upphæð sem er, þó að hámarki 100.000 kr og að lágmarki 3.000 krónur. Hægt er að fá gjafakort pakkað í fallegan spilastokk og ertu þá með tvær gjafir í einni. Spilastokkur kostar 890 kr.

gjafakort

Gjafir til starfsfólks?

Forsvarsmenn fyrirtækja sem huga að gjöfum fyrir starfsfólk geta verið vissir um að gjafakort Kringlunnar hittir í mark - starfsfólkið velur sína gjöf sjálft í fjölbreyttu úrvali verslana. Pantanir skulu berast til þjónustuver Kringlunnar, kringlan@kringlan.is þar sem tekið er fram nafn og kennitala fyrirtækis ásamt fjölda korta og upphæðir. Taka þarf fram hvort afgreiða skuli rafræn gjafakort til að senda í tölvupósti/ sms eða hvort kortin verði afgreidd hvert og eitt í gjafaumslagi eða í fallega spilastokknum.

Gjafakortið gildir í öllum verslunum Kringlunnar nema Vínbúðinni. Innistæðu kortsins er ekki hægt að leysa út fyrir reiðufé né leggja inn í banka.

Gildistími gjafakorta er 4 ár frá kaupdegi. Ef þú ert með kortið í símanum þínum sérðu alltaf innstæðuna sem er eftir á kortinu. Ef þú ert með plastkort getur þú skoðað stöðuna hér á vefnum en einnig er einfalt að sjá stöðuna með því að nota QR kóða á bakhlið kortsins .

gjafakort
Kringlan

Kaupa gjafakort í spilastokki

Þú getur fengið afhent fallegt gjafakort í glæsilegum spilastokki.  Frábær gjöf sem er tvær gjafir í einni.  Þú færð gjafakort í spilastokki hér á vefnum og hægt er að senda hvert sem er,  eða fengið þau afgreidd í þjónustuveri Kringlunnar.  Viðtakandi hleður gjafakortið í símann sinn og notar spilastokkinn fyrir góðar samverustundir.